Aesculus hippocastanum

Ættkvísl
Aesculus
Nafn
hippocastanum
Íslenskt nafn
Hrossakastanía
Ætt
Hrossakastaníuætt (Hippocastanaceae)
Lífsform
Lauffellandi tré.
Kjörlendi
Sól, skjól.
Blómalitur
Hvítur (blómgast sjaldan hérlendis).
Blómgunartími
Júní.
Hæð
4-10 m (-25 m erlendis)
Vaxtarhraði
Hægvaxta.
Vaxtarlag
Tré sem verður allt að 25 m hátt og allt að 25 m í þvermál í heimkynnum sínum. Krónan útbreidd, hvelfd, með margar greinar, þær neðstu svigna undan eigin þunga, uppsveigðar efst. Stofninn getur orðið 5 m í þvermál. Hérlendis eru trén miklu minni.
Lýsing
Börkurinn flagnar af í ræmum eða flögum, rauðbrúnn til matt-grábrúnn. Ungar greinar með brún hár. Lauf-för U-laga. Brum allt að 2,5 × 1,5 sm, með límkennda kvoðu. Smálauf 5-7 talsins, legglaus, öfugegglaga, fleyglaga við grunninn, mjó-langydd til næstum rófuydd, allt að 25 sm löng, dökkgræn ofan, gulgræn neðan, verða rauð eða appelsínugul á haustin, tví-bogsagtennt, grunnsmálauf með dálítið brúnt dúnhár, laufleggur allt að 20 sm. Blómin í pýramídalaga skúfum, allt að 30 sm löngum. Krónublöðin 5, allt að 2 sm í þvermál, hvít með rauða flekki við grunninn og með freknur kringum flekkina, dúnhærð, kögruð. Aldin hnöttótt, allt 6 sm í þvermál, græn, þyrnar mjúkir, hvassyddir, fræ 1-3, glansandi brún með stóra, mólita, kringlótta bletti.
Uppruni
NV Grikkland, M & S Albanía, Búlgaría.
Harka
3
Heimildir
1
Fjölgun
Sáning (fræ liggja í dvala í 1-2 ár).
Notkun/nytjar
Stakstæð tré á skjólsælum, hlýjum stað þar sem tréð hefur nóg vaxtarrými.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein aðkeypt planta, sem var gróðursett í beð 1993, hefur oft kalið mikið ár hvert, þó minna í seinni tíð en í fyrstu. Lifir að minnsta kosti enn 2012. --------------------Viðkvæm. Lengi að ná sér á strik og hefur ekki þrifist sem skyldi - á að vera harðgerðust af öllum hrossakastaníum. Verður krækluleg ef hún er ekki klippt í uppvexti. Þarf skilyrðislaust næringarríkan jarðveg og skjólgóðan stað eigi hún að þrífast. Börkur, blöð og aldin hafa lengi verið notuð í lækningaskyni og þá fyrst og fremst við gigt.
Yrki og undirteg.
Nokkur yrki til erlendis.