Alnus incana

Ættkvísl
Alnus
Nafn
incana
Ssp./var
ssp. kolaensis
Höfundur undirteg.
(Orlova) Á. Löve & D. Löve
Íslenskt nafn
Gráölur (gráelri)
Ætt
Bjarkarætt (Betulaceae)
Lífsform
Lauffellandi runni eða llítið tré.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Karlblóm mógræn, kvenblóm rauðleit-græn.
Blómgunartími
Snemma vors.
Hæð
- 4 m
Vaxtarlag
Lauffellandi runni eða lítið tré, 0,5-4 m hátt, með gulgráan börk. Ársprotar hærðir eða um það bil hárlausir, ekki límkenndir.
Lýsing
Lauf ydd eða bogadregin, mattgræn á báðum hliðum, ögn ljósari á neðra borði. Lauf hvasstennt til bogtennt, bogadregin í toppinn, hárlaus neðan eða með dálitla hæringu á æðastrengjunum, lítið eitt límkennd. Kvenrekla næstum legglausir. Vængir á hnotum um 1 mm breiðir.
Uppruni
Fennoskandía og Kólaskagi.
Heimildir
9, http://en.wikibooks.org, http://herba.msu.ru
Fjölgun
Sáning, sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, í beð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 2002 og er enn í reit 2011, lofar góðu.