Amelanchier canadensis

Ættkvísl
Amelanchier
Nafn
canadensis
Íslenskt nafn
Hunangsamall* (Kanadaviður)
Ætt
Rósaætt (Rosaceae)
Samheiti
A. botryapium (L. fil) Borkhausen, A. intermedia Spach, A. oblongifolia (Torey & Gray) M.J.Roemer
Lífsform
Runni
Kjörlendi
Sól
Blómalitur
Hvítur
Blómgunartími
Maí-júní
Hæð
2-4 m
Vaxtarlag
Uppréttur, skriðull runni, 2-4 m (-8 m í heimk. sínum) á hæð, með granna, þéttstæða sprota og skriðular neðanjarðarrenglur, greinar gráar og hárlausar.
Lýsing
Runni allt að 8 m hár í heimkynnum sínum. Lauf allt að 5×2,5 sm, oddbaugótt, ydd eða bogadregin í oddinn, grunnur oftast bogadreginn með fíngerðar, grunnar, hvassar tennur, hárlaus nema á miðstrengnum og laufleggnum, æðastrengjapör 9-13. Blómklasar allt að 6 sm, uppréttir, í fyrstu með hvítt hár, Krónublöð 9×3 mm, egglaga til öfuglensulaga, snubbótt, hvít. Aldin um 1 sm í þvermál, hnöttótt, purpurasvört.
Uppruni
Austur N-Ameríka.
Harka
Z3
Heimildir
1, 2, 10
Fjölgun
Sáning strax eftir þroskun, sumargræðlingar, sveiggræðsla.
Notkun/nytjar
Í limgerði, stakstæðir runnar, í þyrpingar, í raðir.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til þrjár plöntur undir þessu nafni sem sáð var til 1991 og gróðursettar í beð 2000, 2001 og 2009. Allar hafa kalið dálítið gegnum árin.