Amelanchier ovalis

Ættkvísl
Amelanchier
Nafn
ovalis
Íslenskt nafn
Snæamall
Ætt
Rósaætt (Rosaceae)
Samheiti
A. vulgaris Moench, A. rotundifolia, (Lamarck) Dumont de Courset
Lífsform
Lauffellandi runni - lítið tré.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Júní.
Hæð
- 3 m
Vaxtarlag
Lauffellandi, 1-3 m hár, gisgreinóttur runni, ungar greinar eru hvítullhærðar í fyrstu, verða seinna hárlausar og glansandi ólífugrænar.
Lýsing
Uppréttur eða útbreiddur skriðull runni, allt að 3 m hár. Ungar greinar ullhærðar. Lauf 2,5-5 sm breið, egglaga til öfugegglaga, bogadregin í oddinn eða sýld og broddydd, með grófar tennur sem vita fram á við. Ung lauf með hvítt hár á neðra borði en verða hárlaus. Blómklasar allt að 4 sm, uppréttir, hvíthærðir, með 3-8 blóm. Krónublöð 1-1,5 sm, egglaga-aflöng, hvít. Toppur egglegs hárlaus. Aldin 6 mm breið, hnöttótt, dökkblá til svört.&
Uppruni
M & S Evrópa (fjöll).
Harka
Z5
Heimildir
1,2, 10
Fjölgun
Sáning, sumargræðlingar, sveiggræðsla.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, í beð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 1978 og gróðursett í beð 1988. Falleg planta sem þrífst vel, kelur lítið sem ekkert, ber bæði blóm og ber. Hefur reynst vel í Lystigarðinum.