Angelica archangelica

Ættkvísl
Angelica
Nafn
archangelica
Íslenskt nafn
Ætihvönn
Ætt
Sveipjurtaætt (Apiaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Grænhvítur til rjómalitur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
150-180 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, oftast með græna stöngla, allt að 200 sm hár.
Lýsing
Laufin allt að 2-3 fjaðurskipt, flipar aflangir-egglaga, allt að 15 sm, hárlaus, óreglulega og djúptennt, endastæði flipinn 3-skiptur, legglaus, legghlaupin niður eftir aðalblaðstilknum. Laufleggur neðri laufa langur, efri laufin með mjög flatan lauflegg. Sveipurinn samsettur, geislar fjölmargir, reifar samsettar úr mörgum smáreifum. Blómin grænhvít til rjómalit. Aldinum 6 mm, klofaldin með áberandi rifjum, vængir mjóir, þykkir, korkkenndir, olíukirtlar stakir.
Uppruni
Ísland, N & A Evrópa-M Asía, Grænland.
Harka
4
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning, er oft fremur skammlíf, enda deyr plantan að blómgun lokinni.
Notkun/nytjar
Sem stakstæð jurt, í þyrpingar, undir stór tré, í skógarbotn.
Reynsla
Fjarlægja aldin svo hún sái sér ekki um of. Áður mikið notuð sem lækningaplanta og til matar (allir plöntuhlutar nýttir).