Antennaria neglecta

Ættkvísl
Antennaria
Nafn
neglecta
Íslenskt nafn
Deigjulójurt
Ætt
Körfublómaætt (Asteraceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
4-25 sm
Vaxtarlag
Fjölæringur með ofanjarðarrenglur, sem myndar breiður.
Lýsing
Sérbýli Plönturnar 4-25 sm háar. Ofanjarðarrenglur 2,5-18 sm langar. Grunnlauf 1-tauga, mjóspaðalaga til fleyglaga-öfuglensulaga, 15-65 × 6-18 mm, broddydd, neðra borðið lóhærð efra borðið grá-dúnhært (verður græn og hárlaus með aldrinum). Stöngullauf bandlaga, 1,5-25 mm, halaydd. Körfur (1-)2-8 í sveipkenndri til axlíkri blómskipun eða klasalíkri blómskipun. Reifablöð í karlblómum 4-7mm. Reifablöð í kvenblómum 6-10 mm. Stoðblöð græn til rauð hvít efst. Króna karlblóma 2,7-5 mm, króna kvenblóma 4,5-6,5(-7) mm. Smáhnotir 0,9-1,4 mm, með örsmáa nabba. Svifhárakrans karlblóma 3,5-6,5 mm svifhárakrans kvenblóma 6-8,5(-9,5) mm.
Uppruni
S Kanada til N Kaliforníu.
Heimildir
1, www.eFloras.org Flora of North America
Fjölgun
Sáning, skipting.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, kanta.
Reynsla
Í Lystigarðinum er ein planta sem sáð var til 1997, þrífst vel.