Aronia melanocarpa

Ættkvísl
Aronia
Nafn
melanocarpa
Yrki form
'Moskva'
Íslenskt nafn
Logalauf (Svartapall)
Ætt
Rósaætt (Rosaceae)
Lífsform
Runni
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi
Blómalitur
Hvítur
Blómgunartími
Júní
Hæð
1,5 - 2,5 m
Vaxtarlag
Lauffellandi runni, uppréttur í fyrstu, seinna breiður og drúpandi, 1,5-2,5 m á hæð, fíngerður og tígulegur í vextinum.
Lýsing
Yrkið 'Moskva' er með slétt og fallegt lauf, sem verður áberandi blandað af hárauðum og dökkrauðum haustlitum. Minnir á Amelanchier en er með kirtla á efraborði laufanna. Hauslitir eru fínir og verða bestir í sólskini. Runninn laufgast snemma.Blómin eru hvít með litlar rauðar doppur innst á krónublöðunum. Blómin eru í 5 sm breiðum knippum. Á haustin koma glansandi, svört ber sem eru um 8 mm breið. Þau eru lengi á runnanum eftir að laufið er fallið.
Uppruni
Yrki
Sjúkdómar
Hefur mikið mótstöðuafl gegn sjúkdómum og meindýrum.
Harka
Z4
Heimildir
http://www.nrk.no, http://www.skogoglandskap.no
Fjölgun
Aronia melanocarpa 'Moskva' er fjölgað með fræjum og afkomendurnir eru allir eins sem bendir til þess að um geldæxlun sé að ræða. Fræið þarf að forkæla í 3-4 mánuði svo að það spíri. Ef fræinu er sáð seint að hausti getur það legið í moldinni meira en eitt ár áður en það spírar.
Notkun/nytjar
Aronia er harðgerður runni góður í stóra sem litla garða. Það er hægt að nota hana í beð, í brekkur, staka, í þyrpingar eða í limgerði. Runninn þolir að vera klippt mikið niður. Aronia melanocarpa 'Moskva' er með æt aldin. Nú á dögum er runninn mikið ræktaður til að framleiða ber sem eru æt og það er hægt að nota þau í sultu, saft og vín.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem keypt var og plantað í beð 2007. Kelur dálítið. Svartapall er upprunninn í austanverðri N-Ameríku, en yrkið Moskva kom til Noregs frá grasagarði í Moskvu.