Aronia melanocarpa

Ættkvísl
Aronia
Nafn
melanocarpa
Ssp./var
v. alata
Höfundur undirteg.
Rehd.
Íslenskt nafn
Logalauf (Svartapall)
Ætt
Rósaætt (Rosaceae)
Lífsform
Runni
Kjörlendi
Sól
Blómalitur
Hvítur
Blómgunartími
Júní-júlí
Hæð
1-1,5 m (- 3 m)
Lýsing
Allt að 3 m hár runni í heimkynnum sínum. Laufin stærri en á aðaltegundinni, aflöng-öfugegglaga, ydd. Blóm og aldin stærri en á aðaltegundinni.
Uppruni
N Ameríka
Harka
Z4
Heimildir
1
Fjölgun
Sáning, sumargræðlingar, sveiggræðsla.
Notkun/nytjar
Í beð, í þyrpingar.
Reynsla
Í Lystigarðinum er ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 1993 og gróðursett í beð 2004, kelur lítið.