Aster alpinus

Ættkvísl
Aster
Nafn
alpinus
Íslenskt nafn
Fjallastjarna
Ætt
Asteraceae
Lífsform
fjölær
Kjörlendi
sól
Blómalitur
rósbleikur-bláfjólublár
Blómgunartími
júlí-september
Hæð
0.2-0.3m
Vaxtarlag
Plöntur allt að 20 - 30 sm. Blöð flest í hvirfingu við jörð, .
Lýsing
Lauf spaðalaga, heilrennd eða tennt, gishærð með þrjá aðalæðastrengi, allt að 9 x 1,8 sm, í stofnhvirfingu og smækka upp eftir blómstönglinum. Stöngullauf legglaus, mjórri.Körfur 4 –5 sm í þvermál, einstakar eða fáeinar á greinóttum stöngli. Reifar 7-9 mm, eins og grunnur bolli til hálf kúlulaga, reifablöðin 1,2- 1,5 mm breið, ógreinilega í 2 röðum og öll svipuð, flest ydd, yfirleitt græn. Tungukrónur 20 – 40, 10 –13 x 1,5 – 2 mm, ljósbláfjólubláar (eða hvítar í ræktun). Hvirfilkrónur 5 –5,5 mm, gular. Svifkrans u.þ.b. 6 mm. Aldin 3 – 3,5 mm. Blómgast í júlí – september.
Uppruni
Alpa og Pyreneafjöll, fjöll N Asíu, V Himalaja & Klettafjöll í Kanada
Harka
3, H1
Heimildir
1,2
Fjölgun
skipting að vori, sáning
Notkun/nytjar
steinhæðir, beð
Reynsla
Harðger-meðalharðger og oft fremur skammlíf í ræktun en samt vinsæl og víða fáanleg í gróðrastöðvum.
Yrki og undirteg.
Aster alpinus var. speciosus og Aster alpinus var. superbus eru garðaafbrigði sem eru mikið ræktuð en auk þeirra er fjöldi yrkja í ræktun. Sem dæmi má nefna:'Albus' 25 –30 sm, beinhvítur. 'Happy End' 25 sm, bleikur. 'Trimix' er í blönduðum blómlitum t.d. bleikum og hvítum, um 20 sm. 'Roseus' blómstönglarnir allt að 15 sm, fölbleik, tungukrýnd. ´Dunkel Scharlach´ dökkfjólublár en auk þeirra eru fjölmörg önnur yrki í ræktun erlendis.