Aster amellus

Ættkvísl
Aster
Nafn
amellus
Íslenskt nafn
Hauststjarna
Ætt
Asteraceae
Lífsform
fjölær
Kjörlendi
sól
Blómalitur
purpurablár/gul miðja
Blómgunartími
síðsumars-haust
Hæð
0.5-0.7m
Vaxtarlag
Útafliggjandi jarðlægir stönglar, uppsveigðar greinar. Blómstönglar allt að 70 sm, greinóttir og blöðóttir.
Lýsing
Grunnlauf stilkuð, allt að 7 x 1,6 sm, blaðkan breið, öfuglensulaga, snubbótt til oddbaugótt og ydd, oft tennt. Stöngulblöðin minni. Blómkörfur 3,5 – 7,5 í þvermál oftast 5 –15 í hálfsveip á hverri grein. Reifar 8 –13 mmm, bollalaga - hálfkúlulaga. Reifablöðin oftast 3 –6 x 1,5 – 3,5 mm í ca 3 röðum, þau ytri ógreinilega spaðalaga eða aflöng og mjókka snögglega í stuttan odd, þau innri mjórri, fremur snubbótt. Tungukrónur 10–40, 1,6– 3,2 sm x 1,8–4 mm djúp purpurablá til bleik, sjaldan hvít. Hvirfilkrónur 4,5 – 8 mm, gular. Svifkrans 4,5–8 mm með mislöng hár. Aldin 2,5 – 3,5 mm. Blómgast í sept. – okt. sem er í seinna lagi hérlendis.
Uppruni
Evrópa, V Asía (Kákasus)
Harka
5, H1
Heimildir
1,2
Fjölgun
sáning að vori, skipting
Notkun/nytjar
steinhæðir, fjölær beð
Reynsla
Í uppeldi frá nokkrum stöðum í garðinum og ættu að geta plumað sig sé haustið langt og gott.
Yrki og undirteg.
30 yrki eða fleiri í ræktun t.d. ´Pilis´. 'Rudolf van Goethe'. 'Sonia'. 'Brilliant'. 'Blue King'.'Veilchenkönigin' (Foerster 1956 ) dökkfjólublá, síðblómstrandi, 55 sm og mörg fleiri.