Aster ericoides

Ættkvísl
Aster
Nafn
ericoides
Íslenskt nafn
Lyngstjarna
Ætt
Asteraceae
Samheiti
A. parviceps (Burgess) Mack. & Busli; Virgulus ericoides (L.) Reveal & Kerner
Lífsform
fjölær
Kjörlendi
sól
Blómalitur
hvítur eða bleikur/gulur hvirfill
Blómgunartími
síðsumars
Hæð
0,7-1m
Vaxtarlag
Skriðulir jarðstönglar. Blómstönglar grannir, marggreindir ofan til, allt að 1,2m.
Lýsing
Grunnlauf allt að 5 sm x 4,5 mm, stöku sinnum allt að 7mm breið, bandlaga, band ? öfuglensulaga eða band ? lensulaga, heilrend, útstæð, sum með blaðstilk en önnur ekki. Stöngullauf mun minni og í stoðblaðastíl. Körfur 1 ? 1,2 sm í þvermál, fjölmargar í skúf sem oftast er pýramídalaga. Skúfurinn er með mörg lítil bandlaga geld stoðblöð. Reifar 3 ?5 mm með háar bollalaga, reifablöð misstór, flöt, hvert þeirra með vel aðgreindan tígullaga, oddbaugóttan eða öfugegglaga grænan blett, enda snögglega í litlum gagnsæjum þyrni, oftast raðað reglulega þannig að þau mynda munstur, ytri reifablöðin ekki aðlæg. Tungur 15 ?20, 4 ?5 mm, hvítar eða stundum bleikar. Hvirfill gulur. Svifkrans u.þ.b. 3 mm. Blómgast síðsumars.
Uppruni
A & M N Ameríka
Harka
3; H1
Heimildir
1,2
Fjölgun
skipting að vori, sáning
Notkun/nytjar
fjölær beð, baka til
Reynsla
Hefur reynst þokkalega í garðinum og lifað í fjölmörg ár - reyndar er sú sem hefur lifað lengst er undir nafninu Aster ericoides v. pansus sem er mjög lík aðaltegund en þýfð, hefur vaxið í K1-D10 frá 1985. Þarf stuðning þegar líður á sumarið.
Yrki og undirteg.
Aster ericoides v. prostratus (Kuntze) Blake er aðgreind á útstæðum hárum, ekki á því að hún sé jarðlæg. Vex í þurrum jarðvegi. Fjölmörg yrki í ræktun erlendis og vert væri að prófa þau. Má t.d. nefna 'Blue Wonder', 'Blue Star', 'Golden Spray', 'Pink Cloud', 'Esther' og mörg fleiri eru nefnd í RHS