Aster laevis

Ættkvísl
Aster
Nafn
laevis
Íslenskt nafn
Blikstjarna
Ætt
Asteraceae
Lífsform
fjölær
Kjörlendi
sól
Blómalitur
fjólublár-purpura/gulur hvirfill
Blómgunartími
síðsumars
Hæð
-1,2m
Vaxtarlag
Blómstönglar allt að 1,2 m, greindir.
Lýsing
Grunnlauf allt að 18 x 4 sm, bláleit, heilrend eða tennt, þau neðstu með legg, stundum með vængi og með egglaga eða egg ? lensulaga til spaðalega eða öfuglensulaga blöðku. Mið ? og efstu laufin 10 x 3 sm, legglaus, egglensulaga til bandlaga, greypfætt. Körfur allt að 3 sm í þvermál, nokkuð margar í hálfsveip eða skúf með hálfsveipum. Með tungulaga geld stoðblöð sem minnka snögglega. Reifar 6 ?8 mm hár, breið öfugkeilulega eða bollalaga, reifablöðin í all mörgum röðum, aðlæg, yfirleitt bandlaga eða bandlensulaga ydd eða því sem næst, með mjótt grænt miðrif sem breikkar í mjóan odd baugóttan eða tígullaga enda, oddarnir mynda reglulegt mynstur. Tungur 20 ?35 8 ?11 x 2- 2,5 mm, fjólubláar eða purpura fjólubláar. Hvirfilkrónur 4,5 ? 7 mm. Svifkrans 5 ?6 mm. Sumar ? haustblómstrandi.
Uppruni
N - Ameríka
Harka
H1
Heimildir
2
Fjölgun
sáning, skipting
Notkun/nytjar
steinhæðir, fjölær beð
Reynsla
Hefur reynst vel í garðinum. Elstu eintök frá 1983.