Aster novae-angliae

Ættkvísl
Aster
Nafn
novae-angliae
Íslenskt nafn
Lækjastjarna
Ætt
Asteraceae
Samheiti
Virgulus novae-angliae (L.) Reveal & Kerner
Lífsform
fjölær
Kjörlendi
sól
Blómalitur
blá-purpurarauður/gulur hvirfill
Blómgunartími
haust (nær oft ekki að blómg.)
Hæð
1-1.5m
Vaxtarlag
Plantan hærð, kirtilhár ilmandi. Blómstönglar allt að 2,2 m í heimkynnum sínum. Stönglar grófhærðir, þarf stuðning þegar líður á sumarið.
Lýsing
blöð allt að 12 x 2 sm, þéttstæð, bandlaga - bandlensulaga, heilrend, stilklaus, greypfætt, grunnur hjartalaga eða eyrður. Blóm allt að 4 sm í þvermál mörg saman í hálfsveip eða stundum í skúf með nokkur geld stoðblöð inn á milli reifanna. Reifar 1-1,2 sm háar, skállaga reifablöðin því sem næst öll jafnstór, ytri lensulaga, græn aftursveigð, breytast smá saman, þau innri bandlaga, sem mjókka með grænt miðrif og eru aðlæg. Tungur 40 eða fleiri, 1 – 1,5 sm x ca 1 mm og bláleit til rauðpurpura eða hvít. Hvirfilkrónur 4,5- 5,5 mm, gular. Svifkrans ca 4 mm.
Uppruni
A & M N Ameríka
Harka
2, H1
Heimildir
1,2
Fjölgun
skipting að vori, sáning
Notkun/nytjar
fjölær vel framræst beð
Reynsla
Fremur viðkvæm að Því leyti að hún plumar sig fremur illa hérlendis þrátt fyrir að vera talin vel harger (z2). Hefur vaxið samfellt í 5 ár mest í garðinum en oftast ekki nema 2 ár í samfellu - þarf að reyna betur.Fjölbreytni í blómlitum hefur verið aukið í skærbleikt með úrvali. Vex á ökrum og meðfram flóum í heimkynnum sínum.
Yrki og undirteg.
Fjölmörg yrki í ræktun og mörg Þeirra talin upp í RHS t.d. 'Purple Cloud' , 'Red Cloud','Rosette', 'September Ruby', 'Treasure', 'Violetta' ofl. öll stórvaxin og þurfa stuðning