Aster sikkimensis

Ættkvísl
Aster
Nafn
sikkimensis
Íslenskt nafn
Asíustjarna
Ætt
Asteraceae
Lífsform
fjölær
Kjörlendi
sól
Blómalitur
blár/gulur hvirfill
Blómgunartími
hásumar-haust
Hæð
0,8-1,2m
Vaxtarlag
Fjölæringur allt að 1,2 m. Blómstönglar uppréttir, mikið greindir, laufóttir, hárlausir til smádúnhærðir. Greinar sívalar, bugðóttar.
Lýsing
lauf allt að 17x5 sm, lensulaga, broddydd, heilrennd eða grunnsagtennt, mjókka að grunni, þunn, blaðstilkur breiður, stuttur eða hálfásætinn. Körfur allt að 2 sm í þvermál, fjölmargar í hálfsveip, reifablöð bandlaga langydd. Tungublóm fjölmörg, blá. Aldin 2 mm, með 4 hryggi, stinnhærð. Svifkrans 4 mm, hvítur eða rauður. Blómgast fremur snemma sumars miðað við flestar aðrar tegundir ættkvíslarinnar.
Uppruni
Himalaya (A Nepal, Sikkim)
Harka
5
Heimildir
1
Fjölgun
skipting, sáning
Notkun/nytjar
fjölær beð
Reynsla
Í ræktun í garðinum samfellt frá 1990 - í K1-I18 og þrífst með ágætum.