Astragalus alpinus

Ættkvísl
Astragalus
Nafn
alpinus
Íslenskt nafn
Seljahnúta
Ætt
Ertublómaætt (Fabaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Ljós blápurpura með purpuralitan odd, oddur kjalarins er með dumbrauðar doppur. Vængir fölpurpura.
Blómgunartími
Sumar.
Hæð
- 30 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, allt að 30 sm hár. stilkar mynda þúfu, greinast um hnén, oft jarðlægir.
Lýsing
Lauf allt að 14 sm, smálauf allt að 2,5 sm í 27 pörum, egglaga til hálfkringlótt, snubbótt. Blómskipunin þéttblóma, með allt að 20 blómum. Blómskipunarleggir uppréttir, allt að 17 sm, blómin hangandi. Bikar pípulaga, útflattur þegar fræið er þroskað, ullhærður, tennur tígullaga. Krónan oftast tvílit, fáni allt að 1,5 sm, egglaga-fleyglaga, framjaðraður, ljós blápurpura með purpuralitan odd, oddur kjalarins er með dumbrauðar doppur. Vængir fölpurpura, (sjaldan purpuralitir). Aldin allt að 1.5 sm, hangandi, sporvala, svört eða svört með hvítleita dúnhæringu.
Uppruni
Fjöll í N-Evrópa, Asía og N Ameríka.
Harka
Z5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sáning.
Notkun/nytjar
Í beð, í steinhæðir.
Reynsla
Í Lystigarðinum voru til tvær plöntur sem sáð var til 1985 og gróðursettarí beð 1988 og 1989, sú fyrri lognaðist út af 1990 en hin 1999.