Astragalus penduliflorus

Ættkvísl
Astragalus
Nafn
penduliflorus
Íslenskt nafn
Hengihnúta
Ætt
Ertublómaætt (Fabaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Skærgulur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
40-50 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, allt að 50 sm há. Stönglar uppréttir, dúnhærðir neðantil.
Lýsing
Lauf allt að 10 sm, smálauf allt að 0,5 sm í 7-15 pörum, oddbaugótt til aflöng-lensulaga, lítið eitt hærð bæði ofan og neðan. Blómklasar allt að 4 sm, þéttblóma, blómin allt að 20 talsins, bikar allt að 1 sm, pípulaga, tennur tígul-lensulaga. Krónan gul, fáni allt að 3 sm, snubbóttur, baksveigður, vængir allt að 1 sm, ná fram fyrir kjölinn. Aldin allt að 3 × 1,5 sm, egglaga, hloðflöt ofantil, mjög útflött við grunninn. með þétt svört hár, en verða hárlaus.
Uppruni
Pyrenea-, Alpa-, Karpatafjöll og fleiri fjöll í N Evrópu
Harka
5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sáning.
Notkun/nytjar
í fjölæringabeð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 1986 og gróðursett í beð 1989, þrífst vel.