Barnardia japonica

Ættkvísl
Barnardia
Nafn
japonica
Íslenskt nafn
Kínastjörnulilja*
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Samheiti
Scilla scilloides (Lindl.) Druce
Lífsform
Fjölær laukjurt.
Kjörlendi
Sól-hálfskuggi.
Blómalitur
Blápurpura-bleikur.
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
20-40 sm
Vaxtarlag
Laukar 1,5-2 sm í þvermál, egglaga, laukhýðið með svarta slikju.
Lýsing
Blómstöngull 20-40 sm, grannur, beinn eða ögn hyrndur. Lauf 2-7 talsins, 15-25 x 0,4-0,7 sm, ydd, bandlaga, læpuleg, með rennu, snubbótt í endan eða með smá hettu. Blómin 40-80, í þéttum, aflöngum klasa, 7-12 sm á uppsveigðum oft vafnings-blómlegg, 4-8 sm, stoðblöð 1-2 mm, bandlaga. Blómhlífarlöð 3-4 mm, mjó-aflöng, ydd, útstæð, blápurpura-bleik. Frjóþræðir ögn dúnhærðir á jöðrunum, breiðir neðst, eggleg egglaga, ögn dúnhærð á hornunum, með fá eggbú. Aldin öfugegglaga-hnöttótt hýði allt að 5 mm með svört fræ.
Uppruni
Kína til tempraða hluta Asíu.
Harka
5
Heimildir
= 1, hhttps://en.wikipedia.org/wiki/Barnardia-japonica
Fjölgun
Sáning, hliðarlaukar.
Notkun/nytjar
Í kanta, sem undirgróður.
Reynsla
Þessari tegund var sáð í Lystigarðinum 2007, er enn í sólreit 2015.