Bellevalia paradoxa

Ættkvísl
Bellevalia
Nafn
paradoxa
Íslenskt nafn
Keiluvallilja
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Samheiti
Bellevalia pycnantha (K.Koch) Losinsk. Muscari paradoxum (Fisch. & C.A.Mey) K.Koch.
Lífsform
Fjölær laukjurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Blásvartur, gulgrænn.
Blómgunartími
Vor.
Hæð
- 40 sm
Vaxtarlag
Plantan er allt að 40 sm há. Lauf venjulega miklu lengri en blómstöngullinn, með rennu, djúpgræn, bláleit ofan með slétta jaðra, þau ystu allt að 2,5 sm breið.
Lýsing
Klasar keilulaga og þéttblóma í fyrstu með mörg blóm sem skarast, verða seinna sporvala eða sívalir og gisblóma. Blómleggir jafnlangir og blómin, eru alveg undir blómnum á ungum klösum, verða 1,2 sm við aldinþroskann. Blóm um 6 mm, drúpa alveg frá þroskuðum knúbbi og áfram, óreglulega krukkulaga, hornótt í þversniði, flipar dálítið í fellingum, blásvartir allan tímann, grængulir á jöðrunum og innan á flipunum. Hýði 8 mm, hringlaga, séð frá hlið með skarð efst.
Uppruni
Transkákasus, A Tyrkland, N & V Íran, N Írak,
Heimildir
= 2, davesgarden.com/guides/pf/go/53894/#b,
Fjölgun
Sáning, hliðarlaukar.
Notkun/nytjar
Í kanta, undir tré og runna, í ker eða potta. Plantan er eitruð.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur undir þessu nafni annari var sáð 1990 og hún gróðursett í beð 1992 og en hin kom sem haustlaukur úr blómabúð. Báðar þrífast vel.