Berberis amurensis

Ættkvísl
Berberis
Nafn
amurensis
Íslenskt nafn
Drekabroddur
Ætt
Mítursætt (Berberidaceae)
Samheiti
B. vulgaris L. v. amurensis Regel.
Lífsform
Runni
Kjörlendi
Sól
Blómalitur
Gulur
Blómgunartími
Maí-júní
Hæð
2 - 3,5 m
Vaxtarlag
Þyrnóttur runni með stíf-uppstæðar greinar, breiðvaxinn, árssprotar rákóttir, ljósbrúnir til gulgráir.
Lýsing
Greinar gáraðar, gráar á öðru ári. Þyrnar 3 saman. 1-2 sm langir. Lauf oddbaugótt til aflöng, 3-8 sm löng, snubbótt eða ydd, með fíngerðar þorn-sagtennur, netæðastrengjótt, alveg ljósgræn bæði ofan og neðan, sjaldan bláleit á neðra borði. Blóm allt að 10-25, í löngum, hangandi klösum. Krónublöðin ögn framjöðruð. Aldin oddbaugótt, 1 sm löng, skærrauð, oft hrímug.
Uppruni
NA Asía (Kína, Kórea, Amur, Mansjúría).
Harka
Z5b
Heimildir
1,7
Fjölgun
Haustsáning, sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Stakstæðir, í raðir, í þyrpingar, klippt limgerði.
Reynsla
Hefur verið lengi til hérlendis (30 ár) en er lítt útbreidd, kelur að jafnaði lítið (0-2).
Yrki og undirteg.
Berberis amurensis v. japonica með egglaga blöð og gráleit blöð á neðra borði, berin rauð með vaxbláma, yrkið 'Flamboyant' fær skærrauða haustliti, blöðin eru meira egglaga til sporbaugótt, 3-5 sm að lengd, frískgræn á efra borði en ljósari til bláleit á því neðra.