Berberis buxifolia

Ættkvísl
Berberis
Nafn
buxifolia
Íslenskt nafn
Perlubroddur
Ætt
Mítursætt (Berberidaceae)
Lífsform
Sígrænn runni
Kjörlendi
Sól og skjól
Blómalitur
Appelsínugulur-gulur
Blómgunartími
Júní
Hæð
1-1,5 m
Vaxtarlag
Uppréttur og útbreiddur, þyrnóttur runni.
Lýsing
Greinar dúnhærðar, brúnrákóttar, þyrnar allt að 1,5 sm langir, stakir eða 3 saman. Lauf allt að 2,5 sm löng, öfugegglaga, broddydd, heilrend, leðurkennd, fremur stinn, í skúfum í öxlunum við þyrnana. Blómin 1 eða 2 í blaðöxlunum, appelsínugul-gul. Aldin allt að 8 mm í þvermál, hnöttótt, dökkpurpura, grádöggvuð, aldinleggir ögn dúnhærðir, stíll framstæður, allt að 4 sm, rauður.
Uppruni
S Chile.
Harka
Z5
Heimildir
1, 10
Fjölgun
Haustsáning, sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Stakstæðir, í raðir, í blönduð beð og víðar.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru 2 plöntur sem sáð var til 1986 og plantað í beð 1994 og 1997, báðar hafa kalið talsvert árlega gegnum árin.