Berberis diaphana

Ættkvísl
Berberis
Nafn
diaphana
Íslenskt nafn
Glæsibroddur
Ætt
Mítursætt (Berberidaceae)
Lífsform
R
Kjörlendi
Sól
Blómalitur
Djúpgulur
Blómgunartími
Júní
Hæð
1 - 2 m
Vaxtarlag
Lauffellandi þyrnóttur, uppréttur runni. Greinar gular, ögn vörtóttar og greyptar.
Lýsing
Þyrnar 3 saman, sverir, allt að 2 sm langir. Lauf allt að 4×1 sm, öfugegglaga, smásagtennt, með allt að 10 tennur á hvorri hlið, matt-grágræn ofan, með áberandi netæðamynstur; blágrá neðan, verða skærrauð að haustinu. Blómin allt að 5 saman, djúpgul, allt að 1,5 sm breið. Eggleg 6-10. Aldin allt að 1 sm, egglaga, glansandi, ljós hálfglær-rauð. Stílar langæir, allt að 5 mm.
Uppruni
V Kína
Harka
Z5
Heimildir
1
Fjölgun
Haustsáning, sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Stakstæðir, í raðir, í blönduð beð og víðar.
Reynsla
Í Lystigarðinum er ein planta undir þessu nafni, sem gróðursett var í beð 2004.