Betula lenta

Ættkvísl
Betula
Nafn
lenta
Íslenskt nafn
Sætbjörk
Ætt
Bjarkarætt (Betulaceae)
Samheiti
B. carpinifolia.
Lífsform
Tré
Kjörlendi
Sól-hálfskuggi
Blómalitur
Grænleitur til kakóbrúnn
Blómgunartími
Apríl-maí
Hæð
10-15 m (-25 m)
Vaxtarhraði
Hraðvaxta
Vaxtarlag
Tré, allt að 25 m hátt í heimkynnum sínum, upprétt, mjóslegin og regluleg í vextinum, litur á berki minnir á lit kirsuberja, dökkrauðbrúnn til næstum svartur þegar hann er fullþroskaður, djúprákóttur en flagnar ekki, brúnn með purpura slikju meðan hann er ungur, ilmandi, sætur. Ársprotar silkidúnhærðir meðan þeir eru ungir, seinna hárlausir.
Lýsing
Lauf 6-12 sm, egglaga-aflöng, hvass tvísagtennt, hjartalaga við grunninn, hvassydd til langydd, dökk glansandi græn ofan, ljósari neðan, gullgul að haustinu, silkidúnhærð neðan meðan þau eru ung, æðastrengir í 9-12 pörum, laufleggir 0,5-2,5 sm, hærðir. Karlreklar 5-8 sm. Þroskaðir kvenreklar 2-3,5×1 sm, uppréttir, aflangir-egglaga, næstum legglausir, reklahreistur með breiðari hliðaflipa en miðflipann, hárlaus. Smáhnotir 2×1,5 mm, egglaga, með mjóan væng. Blandast auðveldlega öðrum tegundum af ættkvíslinni (Betula).
Uppruni
Austur N-Ameríka.
Harka
Z3
Heimildir
= 1, http://www.pfaf.org
Fjölgun
Sáning, sumargræðlingar
Notkun/nytjar
Stakstætt tré, í þyrpingar. Auðræktuð planta, sem þrífst vel í vel framræstum, leirkenndum jarðvegi á skjólgóðum stöðum. Vex í þungum leirjarðvegi, en alls ekki í blautum. Skuggþolin. Sætbjörkin er talið þola um 60 til 150 mm ársúrkomu og meðalárshita 5-12°C.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 1998 og gróðursett í beð 2001, kelur ögn.