Betula maximowicziana

Ættkvísl
Betula
Nafn
maximowicziana
Íslenskt nafn
Silfurbjörk
Ætt
Bjarkarætt (Betulaceae)
Lífsform
Tré
Kjörlendi
Sól og skjól
Blómalitur
Grænleitur til kakóbrúnn
Blómgunartími
Síðla vors-snemmsumars
Hæð
8-10 m (- 15 m)
Vaxtarhraði
Hraðvaxta
Vaxtarlag
Meðalstórt til stórt tré sem getur orðið allt að 30 m hátt heimkynnum sínum en mun lægra hérlendis. Vex fremur hratt, krónan gisin, stofn dökkbrúnn meðan trén eru ung, verður gráleitur með tímanum. Börkur þunnur, flagnar, grár og hvítur. Ársprotar dökk rauðbrúnar, hárlausir, glansandi. Trén eru pýramídalaga þegar þau eru ung en verða breiðari þegar fram líða stundir.
Lýsing
Lauf 8-14 × 6-10 sm, breið-egglaga, hvassydd til stuttodddregin, grunnur djúphjartalaga, laufin djúpsagtennt, dökkgræn, gullgul að haustinu oft með rauða æðastrengi, langhærð á ungum trjám í fyrstu. Æðastrengir í 10-12 pörum, ná út fyrir laufbrúnina. Laufleggir 3 sm, sveigjanlegir, sem gerir að verkum að laufin bærast auðveldlega fyrir vindi. Stór, hjartalaga laufin verða skærgul á haustin. Silfurbjörkin er með stærstu laufin í Betula ættkvíslinni, þau verða stundum meira en 12 sm löng. Karlreklar 10-12 sm. Þroskaðir kvenreklar 3-7 sm × 6-7 mm, 3-5 saman, hangandi, sívalir. Rekilhreistur með mjóan miðflipa, hliðaflipar standa út úr reklunum, fliparnir hárlausir. Smáhnotir 3 mm, vængir 2-3 × breiðari en hnotin.
Uppruni
Japan
Harka
Z6
Heimildir
= 1, http://www.barcham.co.uk
Fjölgun
Sáning, sumargræðlingar
Notkun/nytjar
Stakstætt tré, í þyrpingar, beð
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 2000 og gróðursett í beð 2004.