Betula nana

Ættkvísl
Betula
Nafn
nana
Íslenskt nafn
Fjalldrapi, hrís
Ætt
Bjarkarætt (Betulaceae)
Lífsform
Runni
Kjörlendi
Sól-hálfskuggi
Blómalitur
Grænleitur til kakóbrúnn
Blómgunartími
Maí-júní
Hæð
0,3-0,7 m
Vaxtarlag
Runni, jarðlægur eða uppsveigður, 50 sm hár, stundum allt að 1 m hár. Börkur er dökkur, ársprotar brúnir, þéttdúnhærðir, aldrei vörtóttir. Plöntuna er hægt að nota til að þekja jarðveg, myndar útbreidda þúfu, allt að 1,2 m breiða.
Lýsing
Lauf 5-15 mm, næstum kringlótt til nýrlaga, bogadregin í oddinn, gróf-bogtennt nema við grunninn, dökkgræn og glansandi, verða gulmenguð á haustin eða stundum dökkrauð í N-Evrópu, dálítið límkennd þegar þau eru ung, dúnhærð neðan. Æðastrengir í 2-4 pörum, netæðótt, laufleggir 1-2 mm með randhærð axlablöð á báðum hliðum. Blómin eru einkynja (hvert einstakt blóm er annað hvort karlkyns eða kvenkyns en bæði kynin er að finna á sömu plöntunni. Vindfrævun.Þroskaðir kvenreklar 7-10 mm, uppréttir, með mjög stuttan legg, egglaga. Rekilhreistur með næstum jafnlanga flipa, miðflipinn er breiðastur, hárlaus. Smáhnotir með mjög mjóan væng. Blandast auðveldlega öðrum tegundum ættkvíslarinnar.
Uppruni
Háarktísk, Evrasía, Grænland.
Sjúkdómar
Tréð er mjög viðkvæmt fyrir hunangssvepp.
Harka
Z2
Heimildir
= 1, http://www.pfaf.org
Fjölgun
Sumargræðlingar, sáning.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, beð.Seyði af plöntunni er notað sem hárbalsam og til að meðhöndla flösu.Gulan lit er hægt að fá úr laufinu (til að lita textíl). Plantan er notuð sem eldiviður.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru nokkrar plöntur undir þessu nafni, gróðursettar austan við íslensku beðin 1986. Þrífast sæmilega, en þyrftu rakari vaxtarstað.Íslensk tegund - fullkomlega harðger, myndar gjarnan kynblendinga með birki.