Betula occidentalis

Ættkvísl
Betula
Nafn
occidentalis
Íslenskt nafn
Lindabjörk
Ætt
Bjarkarætt (Betulaceae)
Samheiti
Betula beeniana, B. elrodiana, B. obovata, B. fontinalis Sargent; B. fontinalis v. inopina (Jepson) Jepson; B. microphylla Bunge v. fontinalis (Sargent) M. E. Jones; B. occidentalis v. fecunda (Britton) Fernald; B. occidentalis v. inopina (Jepson) C. L. Hitchcock; B. papyrifera Marshall v. occidentalis (Hooker) Sargent; B. papyrifera ssp. occidentalis (Hooker) Hultén.
Lífsform
Runni - lítið tré
Kjörlendi
Sól - hálfskuggi
Blómalitur
Grænleitur til kakóbrúnn
Blómgunartími
Síðla vors
Hæð
4-6 m (-9 m)
Vaxtarhraði
Hraðvaxta.
Vaxtarlag
Útbreiddur, allhár runni eða lítið tré. Getur orðið allt að 9 m hár í heimkynnum sínum. Börkur dökk rauðbrúnn til koparlitur, sléttur, þétt aðlægur, flagnar ekki auðveldlega, korkblettir ljósir, láréttir. Ársprotar ilmlausir og bragðlausir, hárlausir til ögn dúnhærðir, þaktir áberandi rauðleitum kvoðukirtlum.
Lýsing
Laufblaðkan er breið-egglaga til tígul-egglaga, með 2-6 pör af æðastrengjum, 2-5,8 × 1-4,5 sm, grunnur þverstýfður til bogadreginn eða fleyglaga, jaðrar hvass- og gróf-sagtenntir, tennur yfirleitt langar og hvassar, neðsti hlutinn ekki með tennur, hvassydd til stöku sinnum stutt-odddregin, neðra borð ögn eða lítillega dúnhærð, þakin örsmáum kvoðukirtlum. Blómin eru einkynja, hvert einstakt blóm er annað hvort karlkyns eða kvenkyns en bæði kynin er að finna á sömu plöntunni. Vindfrævun. Þroskaðir kvenreklar uppréttir til næstum hangandi, sívalir, 2-3 (-3,9) × 0,8 1,5 sm, með fræ á strjálingi á haustin. Hreistur hárlaus, randhærð, flipar skiptast um mitt hreistur, miðflipinn mjórri og lengri en hliðafliparnir. Hnotin með væng, sem er breiðari en fræið, breiðastur efst og nær upp fyrir fræið.Blandast næfurbjörk (B. papyrifera) úti í villtri náttúru í heimkynnum sínum.
Uppruni
Vestur og mið N-Ameríka.
Sjúkdómar
Tréð er mjög viðkvæmt fyrir hunangssvepp.
Heimildir
= www.eFlora.org Flora of North Ameríka, http://www.pfaf.org
Fjölgun
Sáning, sumargrælingar
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, blönduð beð, stakstæð
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 2000 og gróðursett í beð 2004.