Betula papyrifera

Ættkvísl
Betula
Nafn
papyrifera
Íslenskt nafn
Næfurbjörk
Ætt
Bjarkarætt (Betulaceae)
Samheiti
Betula alba v. papyrifera, Betula lenta v. papyrifera.
Lífsform
Tré
Kjörlendi
Sól (hálfskuggi)
Blómalitur
Grænleitur til kakóbrúnn
Blómgunartími
Apríl - maí
Hæð
7-14 m
Vaxtarlag
Tré sem getur orðið allt að 30 m á hæð í heimkynnum sínum. Grófar greinar, krónan gisin, börkur mjög breytilegur, skjannahvítur, móhvít, mó-grábrúnn, sléttur, flagnar af í pappírskenndum lögum. Ársprotar rauðbrúnir, dúnhærðir, seinna hárlausir, vörtótt.
Lýsing
Lauf 4-9 × 2,5-6 sm, breið-egglaga, ydd, gróftennt og venjulega tvísagtennt, grunnur bogadreginn eða sjaldan hjartalaga, hvassydd til langydd, dökk mattgræn ofan, ljósari á neðra borði, hárlaus nema á jöðrunum, þar dúnhærð, með svartar kirtildoppur á neðra borði, æðastrengir í 6-10 pörum, oftast dúnhærðir á neðra borði, laufleggir allt að 2,5 sm. Blómin eru einkynja (hvert einstakt blóm er annað hvort karlkyns eða kvenkyns en bæði kynin er að finna á sömu plöntunni). Vindfrævun. Karlreklar allt að 10 sm. Þroskaðir kvenreklar 3-4 sm × 6-8 mm, hangandi, sívalir, rekilhreistur stundum dúnhærð, flipar uppréttir eða vita stundum til hliðanna, hliðaflipar dálítið styttri en miðflipinn, Fræ 2 × 1 mm, oddbaugótt, með væng sem er 2 × breiðari en smáhnotin sjálf. Myndar auðveldlega blendinga með öðrum tegundum ættkvíslarinnar.
Uppruni
Norður N-Ameríka til Grænlands.
Sjúkdómar
Tréð er mjög viðkvæmt fyrir hunangssvepp.
Harka
1
Heimildir
= 1, http://www.pfaf.org
Fjölgun
Sáning, sumargræðlingar
Notkun/nytjar
Stakstæð tré, í þyrpingar, beð. Næfurbjörkin er notuð sem lækningaplanta, til litunar, sem eldsneyti, til smíða, til pappírsframleiðslu.
Reynsla
Er ekki í Lystigarðinum 2013.Þau eintök sem til hafa verið af næfurbjörk hafa ekki reynst neitt sérstaklega vel sem er einkennilegt. þar sem tegundin ætti að vera fullkomlega harðgerð hér. Í garðinum eru gamlar alaskabjarkir (Betula papyrifera v. kenaica) og einnig er talið að þær séu í Kjarnaskógi og í gömlu Gróðrastöðinni, Ránargötu 3 og víðar (frá Jóni Rögnvaldssyni) - Þetta þarf þó að athuga betur því þær hafa ekki verið greindar.
Yrki og undirteg.
Betula papyrifera v. commutata (Reg.) Fern. og Betula papyrifera v. minor (Tuckerm.) S. Wats. eru undirtegundir sem ættu að þrífast hér vel miðað við hörkutölu (Z2). Fleiri eru síðan nefndar í Krüssmann t.d. Betula papyrifera v. subcordata 6-10 m frá Klettafjöllum, Betula papyrifera v. humilis NV USA - Alaska - 8-10 m og Betula papyrifera v. cordifolia (Reg.) Fern. Labrador Minnesota.