Betula pendula

Ættkvísl
Betula
Nafn
pendula
Íslenskt nafn
Vörtubjörk
Ætt
Bjarkarætt (Betulaceae)
Samheiti
Betula verrucosa Ehrh., B. alba L., B. alba v. pendula (Roth) W.T.Aiton
Lífsform
Tré
Kjörlendi
Sól
Blómalitur
Brúnn
Blómgunartími
Maí - júní
Hæð
8-14 m
Vaxtarhraði
Hraðvaxta
Vaxtarlag
Tré sem verður 20-25 m hátt og 10 m breitt í heimkynnum sínum, stöku sinnum allt að 30 m hátt, en mun lægra hérlendis. Krónan mjó, gisin, börkur flagnar, er silfurhvítur þegar trén eru ung, þykkur, verður neðst greyptur og svartur með aldrinum. Ársprotar yfirleitt hangandi, mjög grannir, hárlausir með marga kvoðukirtla.
Lýsing
Lauf 3-7 × 2-4,5 sm, breið-egglaga til egglaga-tennt eða því sem næst tígullaga, gróflega tvísagtennt, fínlega langydd, grunnur breið-fleyglaga til þverstýfður, laufin þunn, límkennd meðan þau eru ung, hárlaus, með kirtildoppur bæði ofan og neðan. Laufleggir 1-2 sm. Karlreklar 3-6 sm. Blómin eru einkynja, hvert einstakt blóm er annað hvort karlkyns eða kvenkyns en bæði kynin er að finna á sömu plöntunni. Vindfrævun. Þroskaðir kvenreklar sívalir, 1,5-3,5 × 1 sm, reklahreistur með lítinn, hvassyddan miðflipa og stóra og breiða bogaformaða hliðaflipa. Smáhnotir mjó-egglaga, hárlausar, vængir 2-3 × breiðari en smáhnotin sjálf.
Uppruni
Mestur hluti Evrópu að Bretlandi meðtöldu, suður og austur til Marokkó, V Síberíu og M Asíu.
Sjúkdómar
Ryðsveppur. Tréð er mjög viðkvæmt fyrir hunangssvepp.
Harka
2
Heimildir
= 1, http://www.pfaf.org
Fjölgun
Sáning, sumargræðlingar, ágræðsla (yrkin)
Notkun/nytjar
Í limgerði, í raðir, í þyrpingar, sem stakstæð tré, í blönduð beð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til fyrir 1978 gróðursett var í beð 1985, kelur litið og önnur gömul sem gróðursett var í beð 1985, kelur yfirleitt litið. Einnig eru til tvær plöntur úr tveimur sáningum frá 1984, báðar gróðursettar í beð 1988 og báðar kala lítið eða ekkert. Einnig tvær plöntur sem sáð var til 1992 og gróðursett í beð 1995 og ein planta sem sáð var til 1994 og gróðursett í beð 1995, allar kólu lítið eitt framan af. Ein planta sem sáð var til 1997 er í sólreit 2013, og að lokum ein planta sem sáð var til 1998 og gróðursett í beð 2001, kól lítið eitt árlega fyrstu árin.Einna best er eintak frá Oulu, Finnlandi hefur reynst mjög vel í Lystigarðinum, kelur lítið sem ekkert, haustlitir koma snemma, fallegir, gulir. Viðkvæm fyrir ryðsvepp.
Yrki og undirteg.
Ýmis garðaform (yrki) eru til svo sem 'Dalecarlica' há og með slútandi greinar, 'Tristis' há slútandi, 'Fastigiata' súlulaga, 'Gracilis' -6 m, enginn aðalstofn, 'Youngii' og fleiri. Þessi yrki eru heldur viðkvæmari en aðaltegundin og ekki sérlega harðgerð hérlendis en ættu að geta vaxið þokkalega vel á skýldum, hlýjum stöðum. Ágrædd á rót af ilmbjörk (Betula pubescens).