Betula pendula

Ættkvísl
Betula
Nafn
pendula
Yrki form
'Dalecarlica'
Íslenskt nafn
Dalabjörk (vörtubirki)
Ætt
Bjarkarætt (Betulaceae)
Lífsform
Tré
Kjörlendi
Sól
Blómalitur
Grænleitur til kakóbrúnn
Blómgunartími
Maí-júní
Hæð
8-11 m
Vaxtarhraði
Meðal
Vaxtarlag
Mjög glæsilegt, hávaxið og grannt tré, mjó-pýramídalaga til egglaga í vextinum, 11 m hátt og 6 m breitt, greinaendar hangandi. Börkur fallegur, pappírshvítur, flagnar af með aldrinum, verður gróflega sprunginn með grá-svarta flekki á bolnum.Aðalgreinarnar eru uppréttar frá bolnum og fíngerðir ytri greinaendar verða meira áberandi hangandi eftir því sem tréð eldist.
Lýsing
Laufin djúpskert, áberandi fjaðurlík. Laufið milligrænt að sumrinu, smjörgult að haustinu. Lítil blómin eru í reklum. Karl og kvenblóm eru aðskilin en á sömu plöntunni (einkynja blóm). Litlar, vængjaðar hnotirnar eru í hangandi blómskipuninni/reklunum, sem falla af að haustinu.Þetta yrki fannst fyrst í Svíþjóð 1767. Ef það þarf að snyrta tréð ætti að gera það síðsumars eða snemma hausts. Þar sem snyrting síðla vetrar eða snemma vors getur valdið því að trénu 'blæðir' of mikið.
Uppruni
Yrki.
Harka
2
Heimildir
= 1, http://www.flemings.com.au
Fjölgun
Fjölgað með ágræðslu á stofn af ilmbjörk.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, sem stakstæð tré, í blönduð beð. Dalabjörkin er nógu smávaxin til að henta í litla garða, án þess að vera of yfirþyrmandi. En hún er líka góð á stærri svæði þar sem hún er gróðursett ein sér eða í þyrpingar.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni kom sem planta frá gróðrarstöðinni Kjarna 1993 og var gróðursett í beð 1994, kelur lítið eitt. Þrífst vel á allra bestu stöðum í sól og góðu skjóli.