Bupleurum falcatum

Ættkvísl
Bupleurum
Nafn
falcatum
Íslenskt nafn
Fálkabudda
Ætt
Sveipjurtaætt (Apiaceae).
Samheiti
B. exaltatum Bieberstein, B.olympicum Boisser, B. parnassicum Haláesy, B. rossicum Woronow, B. sibthropianum Smith, B. voronowii Mandenovia, B. falcatum v. scorzonerifolium, (Wildenow) Ledebour
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Gulur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
-100-130 sm
Vaxtarlag
Mjög breytilegur fjölæringur, allt að 100 sm há eða hærri. Lauf með ± samhliða strengi, hliðarstrengir fáir og lítt áberandi. Grunnlauf öfugegglaga, oddbaugótt, aflöng eða bandlaga, með legg eða legglaus, oft sigðlaga.
Lýsing
Geislar 3-15, þráðlaga. Stoðblöð 2-5, lenslaga til sýllaga, misstór, reifablöð 5, bandlenslaga, ydd.
Uppruni
M., S. & M Evrópa, Asía
Heimildir
= 1,2
Fjölgun
Skipting að vori eða hausti, sáning að hausti.
Notkun/nytjar
Í fjölæringabeð, í skrautblómabeð.
Reynsla
Ekki í Lystigarðinum.