Bupleurum longifolium

Ættkvísl
Bupleurum
Nafn
longifolium
Ssp./var
ssp. aureum
Íslenskt nafn
Gullbudda*
Ætt
Sveipjurtaætt (Apiaceae).
Samheiti
Réttara: B. aureum Fisch. ex Hoffm.
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Gulur.
Blómgunartími
Júli-ágúst.
Hæð
- 100 sm
Vaxtarlag
Fjölær planta, 50-120 sm há. Jarðstönglar grannir, dökkbrúnir, skriðulir, lítt greindir. Stönglar 1-2(-3), lítið geindir, gljáandi, oft með purpura slikju, grunnur ekki með trefjóttar, visin slíður. Neðstu blöðin mörg, með legg, blaðkan breiðegglaga eða öfugeggaga, 4-6,5 x 3-5 sm, 9-11-tauga, grunnur mjókkar í lauflegg, oddur bogadreginn eða hvassyddur. Miðlaufin legglaus, blaðkan lýrulaga, grunnur tvíeyrður, lykur um legginn, oddur snubbóttur til yddur. Efri laufin gegnvaxin 12-20 x 3-5,5 sm. Efstu laufin egglaga, lítil, grunnur hjartalaga, lykja um stöngulinn.
Lýsing
Endastæður sveipur 6-10 sm í þvermál, næstu sveipir 3-5 sm, stoðblöð 3-5, egglaga til egglaga-sporbaugðótt, 6-28 x 3-16 mm, misstór. Geislar 6-10, 1,5-6 sm, misstórir. Smástoðblöð tvíeyrð, 5-6(-7), breiðegglaga til oddbaugótt, 4-9 x 3-8 mm, jafnstór, dvergsveipir 6-10 mm í þvermál, 15-20-blóma, blómleggur 2-4 mm. Krónublöð gul, öfugegglaga, miðtaug dökkgul. Stílfótur lág-keilulaga eða skífulaga, fölgulur. Aldin aflöng, dökkbrún, 4-6 x 2,6-3 mm, rif áberandi, olíukirtlar 3 í hverri rák, 4 á hverju viki.
Uppruni
Kína, Kyrgystan, Mongólía, Rússland.
Heimildir
Flora of China, www.efloras.org/florataxon.aspx?flora-id=2&taxon-id=200015410,
Fjölgun
Sáning, skipting.
Notkun/nytjar
Í fjölæringabeð, í skrautblómabeð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir nafninu gullbudda (Bupleurum aureum) sem sáð var 1992 og gróðursett í beð 1994. Fallegri en aðaltegundin og hefur reynst vel í garðinum.
Yrki og undirteg.
Smástoðblöð breið-eglaga eða oddbaugótt, 5-12 x 7-9 mm, hærri en blómin, grunnur snubbóttir --- v. aureum (C.B. Clarke) Ridley_____Smástoðblöð mjóegglaga eða bandlensulaga, 2-3 x 0,7-2 mm, jafnlöng og eða styttri en blómin, mjókka að grunni. --- v. breviinvolucratum (Trautvetter ex H. Wolff) R.H.Shan & Yin Li