Campanula alliariifolia

Ættkvísl
Campanula
Nafn
alliariifolia
Íslenskt nafn
Vaxklukka
Ætt
Campanulaceae
Samheiti
C. lamiifolia Adamson; C. macrophylla Sims.
Lífsform
Fjölær
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi
Blómalitur
Hvítur
Blómgunartími
Júlí-ágúst
Hæð
0.3-0.7m
Vaxtarlag
Fjölæringur með upprétta - skástæða - útafliggjandi, laufótta, þéttdúnhærða blómstöngla. Stönglar og bikarblöð rauðbrúnleit. Blómstönglar allt að 70 sm, ógreindir eða stöku sinnum greinóttir. Meðalstór, langstilkuð laufblöð í hvirfingu við grunn.
Lýsing
Grunnlaufin grágræn, allt að 20 sm, breið-þríhyrnd til hjartalaga, hvít af þéttu filthári á neðra borði, dálítið tennt og stilkuð. Stöngullauf minni og stilkstyttri eftir því sem ofar dregur á stöglum. Blóm hangandi, axlastæð eða í einhliða klösum. Blómin eru með aukabikar. Krónan trektlaga eða mjóbjöllulaga með skegg á jöðrunum, flipar egglaga, hvassyddir, dálítið aftursveigðir, hvítbláir, fannhvítir eða rjómalitir. Stíll næstum ekki út úr krónunni, frævur 3. Hýði öfugkeilulaga með rif og opnast neðantil.
Uppruni
Kákasus, Tyrkland (Anatólía), L Asía
Harka
3, H3
Heimildir
1,2 HS
Fjölgun
Skipting, sáning
Notkun/nytjar
Steinhæðir, beð, undirgróður
Reynsla
Falleg, harðgerð og auðræktuð bláklukkutegund, sem hefur verið lengi í ræktun. Þarf stuðning þegar líður á sumarið.
Yrki og undirteg.
Campanula alliariifolia 'Ivory Bells' er með rjómalit blóm.Campanula alliariifolia 'Flore Pleno' er með ofkrýnd blóm.