Campanula barbata

Ættkvísl
Campanula
Nafn
barbata
Íslenskt nafn
Skeggklukka
Ætt
Campanulaceae
Lífsform
Fjölær, stundum skammlíf
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi
Blómalitur
Ljósgráfjólublár
Blómgunartími
Ágúst-sept.
Hæð
0.2-0.4m
Vaxtarlag
Uppréttur, þýfður, dúnhærður, oft skammlífur fjölæringur með djúpstæðar rætur, flest blöð í hvirfingu við jörð, grófhærðir stönglar og blöð.
Lýsing
Hvirfingarlauf lensulaga eða aflöng, þornhærð með bylgjaða jaðra, heilrend. Stöngullauf borðalaga, dúnhærð. Blómstönglar eru oftast ógreindir, stundum allmargir, allt að 30-40 sm háir. Blóm drúpandi í strjálblóma, einhliða axi, með hærðan, lítt áberandi aukabikar. Krónan allt að 3 sm, ljósgráfjólublá bjöllulaga, klofin að 1/3. Flipar aftursveigðir, randhærðir, skegghærðir að innan með löng hvít hár. Stíll næstum ekki út úr blóminu. Hýði opnast neðst. Blómgast frá júlílokum og fram í september.
Uppruni
Alpa & Karpatafjöll, fjöll í S Noregi
Harka
6, H3
Heimildir
1,2
Fjölgun
Skipting, sáning
Notkun/nytjar
Steinhæðir, kanta, beð, undirgróður
Reynsla
Hefur reynst vel í garðinum og vaxið þar samfellt í N9 frá 1991 þannig að ekki er hún alltaf skammlíf. Þroskar fræ árlega.
Yrki og undirteg.
Campanula barbata 'Alba' með hvít blóm