Campanula betulifolia

Ættkvísl
Campanula
Nafn
betulifolia
Íslenskt nafn
Birkiklukka
Samheiti
C. finitima Fomin; Symphyandra finitima Fomin
Lífsform
Fjölær
Kjörlendi
Sól-hálfsk
Blómalitur
Hvítur-fölkóralbleikur
Blómgunartími
Síðsumars
Hæð
0.15-0.2m
Vaxtarlag
Lágvaxinn, hárlaus eða fíndúnhærður fjölæringur. Blómstönglar margir, uppsveigðir, bogsveigðir eða útafliggjandi, oft með purpura slikju.
Lýsing
Grunnlauf allt að 5 sm, egglaga til breiðegglaga, þykk og næstum hárlaus, stilkuð. Þau geta verið hvasstennt eða óreglulega tennt. Stöngullaufin eru minni, aflöng-lensulaga og næstum stilklaus. Blómin eru upprétt eða lotin í blómskipun sem minnir á hálfsveip. Bikarflipar eru tígullaga til lensulaga, aukabikarfliparnir lensulaga. Knúppar næstum vínrauðir áður en þeir opnast. Krónan djúpbjöllulaga með egglaga flipa sem eru hvítir til fölkóralbleikir.
Uppruni
Kákasus, Tyrkland, Armenia
Harka
5
Heimildir
1
Fjölgun
Sáning, skipting
Notkun/nytjar
Steinhæðir, kanta, fjölær beð
Reynsla
Hefur reynst þokkalega vel í garðinum. Í N7 frá 2000 eða þar um bil.