Campanula carpatica

Ættkvísl
Campanula
Nafn
carpatica
Íslenskt nafn
Hjartaklukka
Ætt
Campanulaceae
Lífsform
Fjölær jurt
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi
Blómalitur
Fölblár, purpura, hvítur
Blómgunartími
Júlí-september
Hæð
0.2-0.45m
Vaxtarlag
Hárlaus fjölæringur með trefjótta, hvíta jarðstöngla, sem mynda þéttan hnaus. Blómstönglar uppréttir, allt að 50 sm, greinóttir.
Lýsing
Grunnlauf skærgræn, ± kringlótt eða hjartalaga, langstilkuð, bogtennt. Stöngullaufin egglaga-langydd, bogtennt og næstum stilklaus. Blóm upprétt, stök og endastæð, mis-legglöng. Bikarflipar lensulaga, heilrendir. Enginn aukabikar. Krónan allt að 4 sm, flöt, útbreidd eða breiðbolla- eða skálalaga. Flipar bogadregnir eða yddir, fölbláir, purpuralitir eða hvítir. Frænisflipar langir og grannir. Hýði egglaga-sívalt með göt efst.
Uppruni
Karpatafjöll
Harka
3, H3
Heimildir
1,2
Fjölgun
Skipting, sáning
Notkun/nytjar
Steinhæðir, undirgróður, kanta, beð
Reynsla
Hjartaklukkan hefur verið lengi í ræktun í görðum hérlendis, en er stundum skammlíf í ræktun. Elstu eintök tegundarinnar í Lystigarðinum hafa lifað þar samfellt frá 1991-2005 sem er ekki alslæmt.
Yrki og undirteg.
Campanula carpatica v. carpatica 15-30 sm háar plöntur sem mynda þéttan hnaus. Lauf legglöng, sporbaugótt-hjartalaga, bogtennt, hárlaus og ljósgræn. Blómin stór, breiðbjöllulaga með stutta flipa, blá eða hvít.Campanula carpatica v. turbinata 10-20 sm háar plöntur. Plönturnar eru með fín, hvít dúnhár. Blóm oftast stök, upprétt, fjólublá með áberandi hvassydda krónuflipaodda, form krónunnar minnir á skál.Campanula carpatica 'Blue Clips' (Benary) er 20 sm með ljós himinbláar blómbjöllur.Kemur rétt upp af fræi. Campanula carpatica 'Weisse Clips' ('White Clips') (Benary) er 20 sm með hvítar blómbjöllur. Kemur rétt upp af fræi. Campanula carpatica 'Spechtmeise' (K. Foerester) 30 sm, bláfjólublá blóm. Campanula carpatica 'Isabel' (Prichard) 20 sm með dökkblá, skállaga blóm.