Campanula cymbalaria

Ættkvísl
Campanula
Nafn
cymbalaria
Íslenskt nafn
Skuggaklukka
Ætt
Campanulaceae
Lífsform
fjölær
Kjörlendi
sól-hálfsk
Blómalitur
bláfjólublár
Blómgunartími
Júní-júlí
Hæð
0.2-0.25 m
Vaxtarlag
Þýfður fjölæringur, 20-25 sm. Blómstönglar útafliggjandi, uppsveigðir til enda.
Lýsing
Lauf mynda blaðhvirfingu við jörð. Þau eru egg- til nýrlaga með breiðar bogatennur og blaðstilkar langir. Krónan er upprétt, breiðbjöllulaga með áberandi útstæða flipa, sem eru um 15 mm í þvermál, bláfjólublá.Blómgast í júní-júlí
Uppruni
V Asía (Líbanon, Tyrkland)
Heimildir
Rock Garden Plant Database
Fjölgun
Fjölgað með fræi sem sáð er að vetrinum, Fræið þarf birtu til að spíra og er sáð á yfirborð jarðvegsins, spírar á 1-3 mánuðum. Það er líka hægt að skipta plöntunni snemma vors eða að haustinu.
Reynsla
Hefur aðeins verið í ræktun í örfá ár í Lystigarðinum.