Campanula elatines

Ættkvísl
Campanula
Nafn
elatines
Íslenskt nafn
Skjáklukka
Ætt
Campanulaceae
Lífsform
fjölær
Blómalitur
blár, hvítur
Blómgunartími
Júlí-ágúst
Vaxtarlag
Þéttþýfður fjölæringur, ± hárlaus eða fínhærður. Stönglar allt að 15 sm, uppsveigðir eða útstæðir, allir með blóm.
Lýsing
Stofnstæðu laufin ± kringlótt til hjartalaga, hvass- til fíntennt, legglöng. Stöngullauf egglaga, ydd með styttri leggi en grunnlaufin. Blómgast í strjálblóma axi eða skúf. Bikarflipar 8-12 mm, band-lensulaga, útstæðir. Enginn aukabikar. Króna allt að 1 sm, flöt, leggstutt, blá eða hvít, flipar útstæðir eða niðurorpnir. Blómgast í júlí-ágúst. Hýði opnast með götum á því miðju.
Uppruni
NV Ítalía strönd Adríahafsins
Harka
Z6
Heimildir
1,2
Fjölgun
skipting, sáning
Reynsla
Þrífst vel. Nokkrar plöntur af undirtegundinni v. fenestrella eru í Lystigarðinum. Þroskaði fræ t.d. 2000, '01, '02, '04
Yrki og undirteg.
Campanula elatiens 'Alba' með hvít blóm.Campanula elatiens v. elatines (Moretti) Fiori. Plantan er mjög þéttdúnhærð, grá og með þykkri lauf en aðaltegundin.Campanula elatiens v. fenestrellata (Fer.) L. H. Bail. Blómstönglar ögn uppsveigðir. Laufin stór, djúpsagtennt, glansandi, skærgræn, stilkstutt.