Campanula glomerata

Ættkvísl
Campanula
Nafn
glomerata
Íslenskt nafn
Höfuðklukka
Ætt
Campanulaceae
Samheiti
C. glomerata v. dahurica Ker Gawler, C. eo-cervicaria Nábelek, C. maleevii Fedorov, C. aggregata Willdenow, C. cephalotes Fischer
Lífsform
Fjölær
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi
Blómalitur
Dökkfjólublár
Blómgunartími
Ágúst-okt.
Hæð
0.4-0.8m
Vaxtarlag
Uppréttur, dúnhærður eða hærður fjölæringur með skriðula jarðstöngla, myndar hnausa. Blómstönglar allt að 80 sm háir, kantaðir, stinnir, ógreindir eða lítið eitt greindir, oft rauðleitir.
Lýsing
Stofnstæðu laufin dúnhærð eða hærð, aflöng eða egglaga-oddbaugótt, sjaldan næstum kringlótt til hjartalaga, bogtennt, langydd til snubbótt, legglöng. Stöngullauf mjórri með styttri legg eða stilklaus og lykja um stilkinn efst. Blómskipunin þéttir kollar með millibili, endastæðir eða í blaðöxlunum. Bikarflipar lensulaga, langyddir. Enginn aukabikar. Krónan allt að 4 sm, sívöl til treklaga eða bjöllulaga, klofin niður að miðju. Flipar eru langyddir eða snubbóttir, djúpfjólubláir til hvítir. Stíll næstum ekki út úr blóminu. Hýði opnast með götum neðst.
Uppruni
Evrópa, Kákasus, Íran, temp. Asía
Harka
2
Heimildir
1,2
Fjölgun
skipting, sáning
Notkun/nytjar
Breiður, undirgróður, sumarbústaðaland, kanta, þyrpingar, beð
Reynsla
Harðger, auðræktuð, langlíf tegund. Þarf að passa nokkuð þar sem hún er skriðul og breiðist nokkuð út (stinga úr henni árlega. Höfuðklukkan hefur verið lengi í ræktun hér á landi. Mjög gamlar plöntur eru í Lystigarðinum.
Yrki og undirteg.
'Dahurica' 50-60 sm dökkblá, 'Acaulis' 15 sm dökkfjólublá, 'Alba' með hvít blóm, 'Crown of Snow' blómin endastæð, hvít í þéttum kolli, 'Joan Elliot' blóm smá, fjólublá, 'Superba' 60 sm, blóm fjólublá-purpura. Campanula glomerata v. dahurica Fisch ex Ker Gawler er allt að 75 sm há, með grófgerðari blóm, djúppurpura.