Campanula portenschlagiana

Ættkvísl
Campanula
Nafn
portenschlagiana
Íslenskt nafn
Urðaklukka
Samheiti
(C. muralis Portenschlag)
Blómalitur
Djúpfjólublár
Blómgunartími
Ágúst-sept.
Hæð
0,2-0,25 m
Vaxtarlag
Fíndúnhærður, þýfður fjölæringur með skriðula neðanjarðarstöngla. Blómstönglar allt að 25 sm, útafliggjandi eða ± rótskeyttir til uppsveigðir, fjölmargir.
Lýsing
Stofnstæðu laufin dúnhærð til næstum hárlaus, mynda blaðhvirfingar. Þau eru hjartalaga til ± kringlótt, tennt og legglöng. Stöngullaufin eru leggstyttri og stilklaus efst. Blóm endastæð eða í blaðöxlunum, legglöng í greinóttum í strjálblóma skúf. Bikarflipar lensulaga. Enginn aukabikar. Krónan allt að 2 sm, trektlaga til bjöllulaga, klofin til hálfs. Flipar stuttir, útstæðir, djúpgráfjólubláir til fjólubláir. Stíllinn næstum ekki fram út blóminu. Hýði opnast með götum um miðjuna.
Uppruni
Balkanskagi (Gamla-Júgóslavía)
Heimildir
1,2
Fjölgun
Skipting, sáning
Notkun/nytjar
Blönduð beð, steinhæðir
Reynsla
Reynsla lítil enn sem komið er en talin ágætis steinhæðarplanta.
Yrki og undirteg.
'Alba' er með hvít blóm.'B. Provis' er með fjölmörg blóm, fölfjólublá.'Major' er stórblóma yrki með purpurablá blóm.'Resholt Variety' Blómin djúpfagurblá.