Campanula trachelium

Ættkvísl
Campanula
Nafn
trachelium
Íslenskt nafn
Netluklukka
Ætt
Campanulaceae (Bláklukkuætt)
Samheiti
C. urticifolia Schmidt, C. trachelioides Bieberstein
Lífsform
Fjölær jurt
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi
Blómalitur
Fjólublár
Blómgunartími
Ágúst-september
Hæð
0,6-0,9 m
Vaxtarlag
Uppréttur, þornhærður fjölæringur með trékenndan jarðstöngul. Blómstönglar 60-90 sm, ógreindir eða greinóttir, kantaðir, þornhærðir, rauðmengaðir.
Lýsing
Stofnstæðu laufin allt að 10 sm, egglaga minna á netlulauf, hrjúf með mjög stutt, stinn hár, ljósgræn að neðan, egglaga til hjartalaga, langydd, gróftennt-grófsagtennt, þornhærð, legglöng. Stöngullauf egglaga, odddregin til breiðlensulaga, leggurinn styttist upp eftir stilknum, laufin eru stilklaus efst. Blómin næstum stilklaus eða leggstutt, leggir bognir eða uppréttir, eru í blaðöxlunum, allt að 4 blóm á enda á hverri grein, mynda þéttan skúf. Bikarflipar þríhyrndir, langyddir, uppréttir. Enginn aukabikar. Krónan allt að 5 sm, pípulaga-bjöllulaga, klofin að 1/3, flipar egglaga, yddir, fínhærðir innan, fjólubláir til lillalitir. stíll næstum ekki eða lítið eitt út úr blóminu, Hýði drúpandi, egglaga, opnast með 3 götum neðst.
Uppruni
Evrópa, N Afríka, NV Tyrkland, V Sýrland, NV & N Íran til Síberíu
Harka
3
Heimildir
1, 2
Notkun/nytjar
Blönduð beð, steinhæðir
Reynsla
Þrífst vel. Netluklukku er getið í Skrúðgarðabókinni 1976 en þar er ekkert um reynslu af henni. Hún hefur a.m.k. verið í Lystigarðinum af og til og samfleytt í 10-15 ár, bæði aðaltegundin og hvítblóma yrkið 'Alba'. Þroskar reglulega fræ.
Yrki og undirteg.
'Alba' hvít