Caragana frutex

Ættkvísl
Caragana
Nafn
frutex
Íslenskt nafn
Þófakergi
Ætt
Ertublómaætt (Fabaceae)
Lífsform
Runni
Kjörlendi
Sól
Blómalitur
Gulur
Blómgunartími
Maí-júní
Hæð
1-3 m
Vaxtarlag
Uppréttur runni, með ofanjarðarrenglur, greinar grannar, gulleitar, hárlausar. Ársprotar grannir, gulleitir, hárlausir.
Lýsing
Lauf með legg, smálaufa 4, öfugegglaga, næstum fingurlaga, 2 sm löng, dökkgræn, þunn, aðalstrengur laufa allt að 1,5 sm langur, stundum langær. Laufleggur og axlablöð dálítið þyrnótt. Blóm allt að 1-3, stór, gul, blómskipunarleggir allt að 2 sm, bikar allt að 1,5 sm, bjöllulaga, dálítið hliðskakkur neðst, tennur breiðþríhyrndar. Króna allt að 2,5 sm. Aldinin/fræbelgirnir 4×0,3 sm, pípulaga, dálítið flöt, hárlaus.
Uppruni
S Rússland til Turkestans og Síberiu.
Harka
Z2
Heimildir
1,7
Fjölgun
Sumargræðlingar, sáning.
Notkun/nytjar
Í raðir, í blönduð beð, í þyrpingar.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur gamlar undir þessu nafni, sem þrífast vel, kala ekkert og blómstra.Hefur verið mjög lengi í ræktun í LA (alveg frá tíma Jóns Rögnvaldssonar). Hefur þrifist vel (k. 0-1 flest ár). Auðþekkt frá garðakergi (baunatré) á því að smáblöðin eru aðeins 4 í stað 8-12.
Yrki og undirteg.
Nokkur yrki í ræktun erlendis, td. 'Biflora' með 2 og 2 blóm saman, 'Latifolia' með stærri blöð dökkgræn og glansandi á efra borði, 'Macrantha' stærri blóm og 'Globosa' með þétt kúlulaga vaxtarlag.