Caragana microphylla

Ættkvísl
Caragana
Nafn
microphylla
Yrki form
'Megalantha'
Íslenskt nafn
Síberíukergi
Ætt
Ertublómaætt (Fabaceae)
Lífsform
Runni
Kjörlendi
Sól
Blómalitur
Gulur
Blómgunartími
Maí-júní
Hæð
2 - 3 m
Lýsing
Smálauf stærri en á aðaltegundinni, allt að 1,2 sm löng, meira kringluleit-öfugegglaga, ljósgræn, ekki eins dúnhærð. Blóm allt að 3 sm. Aldin allt að 4 sm löng.
Uppruni
Yrki.
Harka
Z3
Heimildir
= 1, http://en.hortipedia.com, http://www.sciencedirect.com
Fjölgun
Sumargræðlingar, Sáning
Notkun/nytjar
Í raðir, í þyrpingar, í blönduð beð.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til fjórar plöntur undir þessu nafni, sem var sáð til 1981 og gróðursettar í beð 1984, 1986 og 1987. Allar þrífast vel, kala lítið sem ekkert.