Celmisia semicordata

Ættkvísl
Celmisia
Nafn
semicordata
Íslenskt nafn
Silfurselma (BSt)
Ætt
Körfublómaætt (Asteraceae)
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Sumar.
Hæð
30-50 sm
Vaxtarlag
Kröftugur fjölæringur sem myndar stórar breiður úr ungplöntum sem jarðlægir stönglarnir mynda, blaðslíður eru þétt og mynda allt að 10 sm langan falsstöngul. Vex sem illgresi á NZ. Stærsta tegund ættkvíslarinnar.
Lýsing
Laufblaðkan lensulaga til lensulaga - egglaga aflöng, leðurkennd, (20)-20-40-(60) sm x 2,5-4-4-(10) sm, ydd til odddregin, efra borðið þakið feldi af gráu hári, efra borð með þétta hvíta silki-lóhæringu. Miðrif oftast áberandi. Jaðrar heilrendir, ögn innundnir, mjókka í stuttan lauflegg. Blómleggur sterklegur, allt að 40 sm hár, karfan 4-10 sm í þvermál. Geislablóm mörg, (2)-3-4 sm löng, tungan mjó-aflöng, mjög áberandi, oftast með 4 tennur. Pípukrýndu blómin um 7-8 mm, löng, mjótrektlaga, tennur smáar, breið-þríhyrndar.
Uppruni
Nýja Sjáland - Suðureyja allt upp í 1400 m
Heimildir
NZ Plants
Fjölgun
Sáning.
Notkun/nytjar
Í fjölær beð, í steinhæðir.
Reynsla
Lítt reynd enn sem komið er (2004) er í uppeldi.Vex á Suðureyju NZ í 600-1400 m hæð. Var áður undir Celmisia coriacea en það er nú talið rangt (NZ Plants) þar sem C. coriacea er nú notað á plöntu sem áður gekk undir nafninu C. lanceolata.