Chamaecyparis lawsoniana

Ættkvísl
Chamaecyparis
Nafn
lawsoniana
Íslenskt nafn
Fagursýprus (slútsýprus)
Ætt
Sýprisætt (Cupressaceae).
Lífsform
Sígrænn runni - lítið tré.
Kjörlendi
Sól - hálfskuggi.
Blómalitur
Fagurrauður.
Blómgunartími
Snemma vors.
Hæð
2-5 m (-40 m í heimk. sínum) .
Vaxtarlag
Vex sem runni hérlendis, keilulaga á unga aldri, en súlulaga er hann eldist, stuttar, margskiptar, láréttar greinar sem eru slútandi, smágreinar flatar í einum fleti, börkur rauðbrúnn, toppsprotinn (grænn ársvöxtur) drúpandi.
Lýsing
Börkur rauðbrúnn með kringlóttu hreistri, smágreinar flatar, allar í sama fleti. Nálar aðlægar, ± yddar kantnálar kjalaðar, oddur ekki aðlægur, hliðarnálar ofan og neðan á greinunum miklu minni, tígullaga oft með einn kirtil, að neðan með ógreinilega hvíta línu. Könglar fjölmargir, smáir, kúlulaga, 8 mm breiðir, blágrænir í fyrstu, þroskast á fyrsta ári, síðar brúnir með 8 köngulhreistur, hvert með samanklemmdum þrymli (nabba).
Uppruni
N Ameríka (SV Oregon til NV Kaliforníu, fjöll).
Harka
6
Heimildir
1, 7, Roloff/Bärtels 1996: Gehölze
Fjölgun
Sáning, haustgræðlingar.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, sem stakstæður runni, í beð, undir stór tré.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 1991 og önnur sem sáð var 1993, kala lítið eitt stöku ár fyrstu æviárin, annars ekkert. Þrífst vel í Lystigarðinum. Þarf góða vetrarskýlingu framan af aldri. Klippingar eiga að fara fram að sumri til á öllum sýprus tegundum.
Yrki og undirteg.
Yrki skipta hundruðum erlendis og fæst Þeirra hafa verið reynd hérlendis. Í garðinum eru t.d. plöntur undir: 'Compacta', 'Erecta Glaucescens', 'Fraseri', 'Glauca, Elegans', 'Glauca', 'Kelleriis', 'Lombarts Glauca', 'Lutea', 'Minima Glauca', 'Silver Queen', 'Stewartii', ´Tiomfe van Boskoop' og fleiri.