Chamaecyparis lawsoniana

Ættkvísl
Chamaecyparis
Nafn
lawsoniana
Yrki form
Triomf van Boskoop
Höf.
(Grootendorst um 1890)
Íslenskt nafn
Fagursýprus
Ætt
Sýprisætt (Cupressaceae).
Lífsform
Sígrænn runni - lítið tré.
Kjörlendi
Sól-hálfskuggi.
Blómalitur
KK blóm fagurrauð.
Blómgunartími
Snemma vors.
Hæð
2-6 m (- 15 m)
Vaxtarlag
Keilulaga yrki og mjög sterklegt í vexti, allt að 15 m hátt erlendis en mun lægra hér.
Lýsing
Nálar blágrænar, með jafna blágræna slikju. Greinar uppréttar og framstæðar, blágrænar, jafn silfraðar, dálítið ljósari að neðan, snarpar viðkomu.
Uppruni
Yrki.
Harka
6
Heimildir
7, Roloff/Bärtels 1996: Gehölze.
Fjölgun
Græðlingar.
Notkun/nytjar
Í beð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta sem keypt var 2000 og plantað í beð 2001, vetrarskýling 2001-2007. Kal lítið stöku ár eða ekkert.