Chionodoxa forbesii

Ættkvísl
Chionodoxa
Nafn
forbesii
Íslenskt nafn
Snæstjarna
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Samheiti
C. luciliae mistúlkun, C. tmolust Whittad, C. siehei Staf.
Lífsform
Fjölær laukjurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Mjög djúpblár með hvítt miðband.
Blómgunartími
Vor.
Hæð
20-30 sm
Vaxtarlag
Lauf upprétt eða útstæð, 7-28 sm.
Lýsing
Venjulega er einn blómstöngull á lauk, allt að 30 sm langur með 4-12 blóm. Blómin dálítið hangandi. Blómhlíf mjög djúpblá með hvítt miðband eða bleik með hvíta miðju (hjá 'Pink Giant'), pípan 3-5 mm. Flipar 1-1,5 sm x 4-5 mm. Frjóþræðir 2mm og 3 mm, hvítir.
Uppruni
V Tyrkland (fjöll).
Sjúkdómar
Engir.
Harka
4
Heimildir
= 1,2
Fjölgun
Sáning, hliðarlaukar, (laukar eru settir 5-7 sm djúpt).
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, sem undirgróður undir tré og runna, í blómaengi, í grasflatir.
Reynsla
Kom í Lystigarðinn sem laukur úr blómabúð. Þrífst vel og blómstrar mikið.
Yrki og undirteg.
Nokkur yrki í ræktun t.d. 'Alba', sem er með snjóhvít blóm, 'Pink Gigant', sem er með bleik blóm með hvíta miðju, 'Naburn Blue' sem er með dökkblá blóm með hvíta miðju og 'Tmoli' dvergvaxin jurt, 10 sm með skærblá blóm.