Clematis aethusifolia

Ættkvísl
Clematis
Nafn
aethusifolia
Íslenskt nafn
Blæbergsóley
Ætt
Sóleyjarætt (Ranunculaceae)
Lífsform
Fjölæringur, uppréttur eða klifrandi.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Fölgulur til rjómahvítur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Vaxtarlag
Uppréttur eða klifrandi fjölæringur.
Lýsing
Fjölæringur, allt að 60 sm há. Sprota grannir, dálítið grópstrengjóttir, með ögn af aðlægri dúnhæringu. Lauf allt að 20 talsins, 5 sm löng, skærgræn, 3-, 5- eða 7- fjaðurflipótt, flipar djúpflipóttir til þríflipóttir. Smálauf allt að 3 sm, bandlaga til öfugegglaga eða aflöng, breið-mjókkandi að grunni, gróf og óreglulega tennt, ullhærð. Blóm allt að 2 sm, mjó-bjöllulaga, hangandi, í 1-3 blóma, axlastæðum skúfum. Blómskipunarleggir grannir, uppréttir, allt að 5 sm langir. bikarblöð fölgul til rjómahvít, allt að 2 sm löng, mjó-aflöng, ydd, hvítullhærð á jöðrunum, fræflar þráðlaga, ullhærðir. Smáhnetur gáróttar, með hvít-fjaðraða stíla, allt að 3 sm langa.
Uppruni
N Kína, Kórea.
Harka
Z5
Heimildir
1
Fjölgun
Sáning.
Notkun/nytjar
Í fjölæringabeð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 1991 og gróðursett í beð 1995, sem þrífst nokkuð vel.