Clematis occidentalis

Ættkvísl
Clematis
Nafn
occidentalis
Höfundur undirteg.
Íslenskt nafn
Lotbergsóley
Ætt
Sóleyjarætt (Ranunculaceae)
Lífsform
Klifurrunni
Kjörlendi
Sól og skjól
Blómalitur
Blár til fjólublár eða bleik-blápurpura
Blómgunartími
Júní-ágúst
Hæð
- 2,5 m
Vaxtarlag
Klifrandi eða jarðlægur runni.
Lýsing
Ungir sprotar greyptir eða grópstrengjóttir, hárlausir. Lauf þrískipt, smálauf 5-7 sm, lensulaga-egglaga, grunnur hjartalaga, heilrend, allt að 2-3 flipótt, oft sagtennt, gisdúnhærð neðan í fyrstu. Blómin allt að 7,5 sm í þvermál, stök, legglöng, drúpandi, bikarblöð allt að 6 sm, 4 lensulaga, blá til fjólublá eða bleik-blápurpura, útstæð, með áberandi æðastrengi, æðastrengir og jaðrar dúnhærðir, gervifræflar minna á krónublöð, mjó-spaðalaga. Smáhnetur eru með 4 sm langan stíl, líkan fjöður.
Uppruni
NA og NV N-Ameríka
Harka
6
Heimildir
1,7
Fjölgun
Sáning, sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Á veggi eða grindur í góðu skjóli og sól.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð vaer til 2000 og gróðursett í beð 2006, rétt tórir 2011.