Cornus alba

Ættkvísl
Cornus
Nafn
alba
Íslenskt nafn
Mjallarhyrnir
Ætt
Skollabersætt (Cornaceae)
Lífsform
Runni
Kjörlendi
Sól (hálfskuggi)
Blómalitur
Gulhvítur
Blómgunartími
Júní-júlí
Hæð
1-2 m (- 3 m)
Vaxtarlag
Uppréttur runni með rótarskot, allt að 3 m hár og 2,5 m breiður, stofnar jarðlægir til uppréttir og útstæðir, greinar hárlausar. Börkur mjög fallegur, greinarnar verða skær blóðrauðar á veturna og næstum því grænar aftur að vorinu. Greinar sléttar nema korkfrumurnar. Mergur hvítur.
Lýsing
Laufin eru gagnstæð, heil, breytileg, 4-8 sm, egglaga-oddbaugótt, með stutta, mjóa odda, dökkgræn ofan, blágræn neðan, æðastrengjapör 5-6. Lauf eru gulgræn fyrst á vorin en verða milligræn til dökkgræn. Blómin lítil í mjóum, flötum kvíslskúfum, 3-5 sm í þvermál, rjómalit/gulhvít. Aldin hvít til ljósblá, um 1 sm í þvermál, þroskast í júlí-ágúst. Fræin lengri en þau eru breið, íflöt til beggja enda.Fjarlægið elstu greinarnar til að hvetja til nývaxtar en nýjar greinar eru með fallegustu litina. Skrautleg að vetri.
Uppruni
Síbería, N-Kína til Kóreu
Harka
3
Heimildir
1, http://www.hort.uconn.edu
Fjölgun
Sumargræðlingar, haustsáning, sveiggræðsla að vori.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, blönduð beð, á umferðaeyjar.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til þrjár plöntur sem sáð var til 1988 og gróðursettar í beð 1993, 1994 og 1997, einnig eru til tvær plöntur sem sáð var til 1990 og gróðursettar í beð 1993 og 1999 svo og ein planta sem sáð var til 1991 og gróðursett í beð 1994. Meðalharðgerður runni, vex vel en kelur mikið, fallegastur ef klipptur alveg niður árlega.
Yrki og undirteg.
Ýmis yrki eru til erlendis og má þar nefna:'Alleman's Compact' harðgerður, sjúkdómalaus þéttvaxið dvergform allt að 1,8 m hátt með rauða stofna að vetrinum.'Argenteo-marginata' (einnig oft undir 'Elegantissima') Laufin eru mjórri en á aðaltegundinni og jaðrar hvítir. Ekki eins kröftug planta aðaltegundin með rauða stofna að vetrinum. Algeng í gróðrarstöðvum erlendis.'Bloodgood' Úrval með mjög fallega, rauða stofna.'Bud's Yellow' Oft í plöntulistum er með skærgula stofna, verður allt að 1,8 m hár og verður breiðari, getur verið góður valkostur í staðinn fyrir hinn sjúkdómanæma C. sericea 'Flaviramea'.'Siberian Pearls' er form sem valið var vegna fjölda, hvítra blóma, fallegra aldina með hvítar/blá ber, stofnarnir eru rauðir.