Cornus alternifolia

Ættkvísl
Cornus
Nafn
alternifolia
Íslenskt nafn
Trjáhyrnir
Ætt
Skollabersætt (Cornaceae)
Lífsform
Runni - lítið tré
Kjörlendi
Hálfskuggi (sól)
Blómalitur
Gulhvítur
Blómgunartími
Snemmsumars
Hæð
2-5 m (- 8 m)
Vaxtarlag
Runni eða lítið tré, toppur flatur, með láréttar greinar í röðum. Dálítið óreglulegt í vextinum en getur verið meira eða minna hvelft, gisgreinótt eða þéttgreinótt. Gamall börkur er grábrúnn og ögn hryggjóttur og greyptur, ungur börkur er sléttur og rauðbrúnn. Fremur skammlíf tegund.
Lýsing
Lauf 6-12 sm, stakstæð, í endastæðum þyrpingum, egglaga-oddbaugótt, dökkgræn ofan, óreglulega bláleit-blágræn, neðan æðastrengir í 5-6 pörum, laufleggir 5-6 sm. Litir haustlaufa ekki áhrifamiklir, blanda af gulu með rauðpurpura litbrigðum.Blómin lítil í 5 sm breiðum, flötum sveipum, gulhvít, blómleggir með rauða dúnhæringu. Aldin hnöttótt, breytast frá grænu í rauðleitt stig og í blásvart sjaldan gul, hrímug. Aldinin standa ekki lengi. Aldinleggurinn stendur áfram og verður fallega kóralrauður.
Uppruni
A N-Ameríka
Harka
3
Heimildir
1, http://www.uconn.edu
Fjölgun
Haustsáning, græðlingar.
Notkun/nytjar
Í beð. Svalur, rakur, súr jarðvegur er bestur, hálfskuggi er fyrirtak, full sól er nothæf ef staðurinn er ekki heitur og þurr, fallegastur í köldu loftslagi.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur undir þessu nafni sem sáð var til 1988 og gróðursettar í beð 2001 og 2004.