Cornus mas

Ættkvísl
Cornus
Nafn
mas
Íslenskt nafn
Vorhyrnir
Ætt
Skollabersætt (Cornaceae)
Samheiti
C. mascula
Lífsform
Runni - lítið tré
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi
Blómalitur
Skærgulur
Blómgunartími
Apríl-maí
Hæð
1,5-3 m (-5) m
Vaxtarhraði
Meðalvaxtarhraði
Vaxtarlag
Runni eða lítið tré með útstæðar greinar. Ungar greinar eru þaktar grágrænni dúnhæringu.
Lýsing
Lauf 4-10 sm, egglaga, ydd, mjókka að grunni eða eru bogadregin við grunninn, dökkgræn með aðlæg dúnhár á efra borði og því neðra líka, 3-5 æðastrengjapor, laufleggir allt að 6 mm langir. Blómin smá, skærgul, þroskast snemma, 2 sm í þvermál, koma á undan laufunum á ársprotum fyrra árs. Stoðblöð 4, visna áður en blómin þroskast. Blómin eru tvíkynja (eru með bæði karl- og kvenæxlunarfæri) og eru frævuð af skordýrum. Aldin 2 sm, skærrauð, aflöng. Fræ þroskuð í september.
Uppruni
Evrópa, V Asía
Sjúkdómar
Með mótstöðuafl gegn hunangssvepp.
Harka
5
Heimildir
= 1, http://www.pfaf.org
Fjölgun
Sumar- og vetrargræðlingar með hæl, haustsáning, sveiggræðsla að vori.
Notkun/nytjar
Þyrpingar, beð
Reynsla
Í Lystigarðinum hefur verið sáð til vorhyrnis 2011. Mjög skrautleg planta sem blómstrar snemma vors og er mikilsverð fæða fyrir hunangsflugur sem fara af stað snemma.Ætir hlutar. Aldin hrá, þurrkuð eða niðursoðin, safi sem er mjög súr. Fullþroska aldin líkjast plómum að bragði og áferð og eru mjög ljúffeng til neyslu, en óþroskuð aldin eru nokkuð barkandi. Lítið pektín er í aldinunum svo að það verður að nota þau með öðrum aldinum í mauk. Aldinin hafa verið geymd í saltvökva eins og ólífur. Aldinin eru sæmilega stór, allt að 15 mm löng, með eitt stórt fræ. Smávegis af ætri olíu er hægt að vinna úr fræjunum. Fræin eru ristuð og möluð í duft og notuð eins og kaffibætir.
Yrki og undirteg.
Fjöldi yrkja í ræktun erlendis, t.d. 'Alba', 'Aurea', 'Crispa', 'Golden Glory', 'Nana', 'Pyramidalis','Violacea' og 'Xanthocarpa' Það eru til nokkur yrki með gul, hvít og purpuralit aldin. Það getur tekið plöntur sem koma upp af fræi allt að 20 árum að mynda aldin. Plöntur sem ræktaðar eru upp af græðlingum eru miklu fljótari að mynda aldin, en þær plöntur lifa skemur en plöntur sem ræktaðar eru upp af fræi.